Íslenska English Dansk Svenska Deutsch Espanol Francais Japanese Chinese Concat us
Þú ert hér:

Alþjóðlegur móðurmálsdagur - "Okkar mál!" - dagskrá í Borgarbókasafninu

20/02/2012

logoAlþjóðlegi móðurmálsdagurinn sem haldinn er hátíðlegur þriðjudaginn 21. febrúar er samstarfsverkefni SVF með Félaginu Móðurmál, Tungumálatorgi, Borgarbókasafni, Leikskólasviði og Bókmenntaborginni Reykjavík. Af þessu tilefni er efnt til dagskrár fyrir börn og fjölskyldur þeirra sem hefst kl. 17 og lýkur um 18:30 í aðalsafni Borgarbókasafnsins við Tryggvagötu 15 þriðjudaginn 21. febrúar. Dagskrána má nálgast hér á vefnum.

Hér að neðan má sjá myndir frá deginum: 

Ýmislegt var í boði fyrir börnin

Vigdís Finnbogadóttir var heiðursgestur samkomunnar

Til baka í fréttalistann