Alþjóðlegar ráðstefnur
Stofnunin stendur fyrir alþjóðlegum ráðstefnum með innlendum og erlendum þátttakendum. Tilgangur þeirra er að skapa vettvang fyrir rökræðu um nýja þekkingu innan fræðasamfélagsins, deila þekkingu og hugmyndum með almenningi og stuðla ða upplýstri umræðu í þjóðfélaginu á fræðasviðum stofnunarinnar.
Stofnun Vigdísar Finnbogadóttur hefur staðið fyrir mörgum alþjóðlegum ráðstefnum á undanförnum árum, þær eru:
- Nordand10, 25. - 28. maí 2011.
- Varðveisla til framtíðar: Sjálfbærni tungumáls, menningar og náttúru (2010),
- Ráðstefna á sviði þvermenningarlegra fræða (2008),
- Margbreytileiki tungumála og mennigarheima: Alþjóðleg tungumálamiðstöð (2007),
- Samræður menningarheima (2005) og
- Ráðstefna um tungutækni í kennslu og þýðingum (2004).
Á döfinni:
Nordisk Forskerforum 27. - 28. október 2011.




