Íslenska English Dansk Svenska Deutsch Espanol Francais Japanese Chinese Concat us
Þú ert hér:

Bókasafn og heimasvæði

Sérhæft bóka- og gagnasafn (bækur, tímarit, rafræn gögn) um tungumál og menningu fyrir fræðimenn verður starfrækt í tungumálamiðstöðinni. Jafnframt verður þar að finna margvísleg gögn um tungumál og tungumálakennslu, t.d. bækur og kennsluefni á rafrænu formi. Til greina kæmi að hafa á boðstólum efni um þau tungumál sem eru móðurmál nýbúa á Íslandi, evrópsk minnihlutamál í Evrópu og um tungumál sem skyldust eru íslensku.

Í tungumálamiðstöðinni verða skipulögð sérstök heimasvæði fyrir öll þau tungumál sem kennd eru við Háskóla Íslands, þar sem komið verður fyrir gögnum (fræðibókum, handbókum og uppsláttarritum, tímaritum, kvikmyndum, tölvuforritum og margmiðlunarefni) sem sérstaklega tengjast námi í viðkomandi tungumáli. Heimasvæðin munu gera viðkomandi mál- og menningarsvæði sýnilegt í tungumálamiðstöðinni og þar munu nemendur eiga aðgang að efni sem getur nýst þeim í náminu. Allt kapp verður lagt á að gera tungumálanámið skilvirkt og árangursríkt.