Chris Durban með fyrirlestur um þýðingar í Odda
03/01/2012
Christine Durban, sem er virtur þýðandi frá frönsku yfir
á ensku, flytur fyrirlestur um þýðingar í stofu 106 í Odda, föstudaginn 6. janúar kl. 12. Fyrirlesturinn sem nefnist: "Translation market(s) 2012 and beyond“ er haldinn í samvinnu Þýðingaseturs og Stofnunar Vigdísar Finnbogadóttur.
Chris Durban er vanur fyrirlesari og hefur lengi skrifað pistla um þýðingar á vefinn Translation Journal og þeir hafa nýlega verið gefnir út í bókarformi. Chris Durban er búsett í París og sérsvið hennar eru þýðingar á textum tengdum viðskiptum og fjármálum en hún hefur unnið við þýðingar í yfir þrjá áratugi. Meðal þess sem hún hefur samið og gefið út eru rit ætluð þeim sem kaupa þjónustu af þýðendum.




