Íslenska English Dansk Svenska Deutsch Espanol Francais Japanese Chinese Concat us
Þú ert hér:

Fréttir 2011

Hönnunarsamkeppni um hús Vigdísarstofnunar hafin

22/12/2011

logoFramkvæmdasýsla ríkisins, f.h. Háskóla Íslands, býður til opinnar hönnunarsamkeppni (framkvæmdasamkeppni) um byggingu fyrir Stofnun Vigdísar Finnbogadóttur í erlendum tungumálum sem rísa mun vestan Suðurgötu. Um er að ræða u.þ.b. 4000 m² byggingu, en þar af er um 1000 m² bílageymsla neðanjarðar.

Veitt verða þrenn verðlaun að heildarfjárhæð 10 milljónir kr. Gert er ráð fyrir að hönnun verði lokið og útboðsgögn tilbúin í janúar 2013 og að framkvæmdir hefjist í maí 2013 og þeim verði lokið í ágúst 2014.

Tvö fyrirspurnartímabil eru í samkeppninni og lýkur því fyrra 19. janúar 2012 en því síðara 7. mars 2012.  Tillögum þarf að skila inn til Ríkiskaupa fyrir kl. 16:00 22. mars 2012.

Samkeppnin fer fram í samvinnu við Arkitektafélag Íslands og er auglýst á EES.

Nánari upplýsingar er að finna í samkeppnislýsingu sem er aðgengileg á vef Ríkiskaupa, www.rikiskaup.is, útboðsnúmerið er 15164.  

Gert er ráð fyrir að byggingin muni laða að sér marga gesti, innlenda sem erlenda, og á hönnun hússins að taka mið af því og að hluti þess verði opinn almenningi.

Að lokinni samkeppni er gert ráð fyrir að vinningshafi myndi hönnunarteymi um tillöguna með þeim hönnuðum sem að verkinu koma, t.d. arkitektum, verkfræðingum, innanhússhönnuðum og öðrum þeim hönnuðum sem þarf til að mynda heildstætt hönnunarteymi. Miðað er við að byggingin verði tekin í notkun í ágúst 2014. 

Vigdís ræðir menntun og stöðu kvenna hjá UNESCO

12/12/2011

VigdísViðtal við Vigdísi Finnbogadóttir, velgjörðarsendiherra UNESCO í tungumálum, birtist á heimasíðu UNESCO nýlega og hefur vakið talsverða athygli víða um heim. Viðtalinu er slegið upp á aðalsíðunni og birtist í heild sinni í menntunarhluta heimasíðunnar. Þar ræðir Vigdís um hvernig krafturinn sem býr í konum geti orðið til þess að bjarga heiminum og því sé mikilvægt að konur um allan heim læri að lesa og fái tækifæri til að mennta sig. Feður og bræður eigi að taka höndum saman með konum til að tryggja betri framtíð og stuðla að jafnrétti. 

Hún talar líka um sjálfbæra þróun og framtíð jarðar, þátttöku kvenna í stjórnmálum og leiðtogaþjálfun kvenna. Viðtalið má lesa hér á heimasíðu UNESCO.  Viðtalið var tekið í kjölfar þess að Vigdís var einn lykilfyrirlesara á ráðstefnu UNESCO í París sem nefndist "Girls' and Women's Education: The Way Forward". 

Hlaut verðlaun í norrænni ritgerðasamkeppni

08/12/2011

VerðlaunahafinnGuðrún Tinna Ólafsdóttir hlaut nýlega verðlaun fyrir B.A. ritgerð sína í norrænni ritgerðasamkeppni kennaranema sem efnt var til á vegum Nordisk Sprogkampagne. Guðrún Tinna lauk B.A. prófi í dönsku frá Háskóla Íslands vorið 2010 og verðlaunaritgerðin heitir: "Kan du lide dansk? En undersøgelse af unge islændinges holdning til danskfaget i folkeskolen." Verðlaunaupphæðin nam tíu þúsund dönskum krónum, jafnvirði um 210.000 íslenskra króna.

Önnur stúlka, Bettina Dam Rüger, hlaut einnig verðlaun fyrir verkefni um kennslu grannmála fyrir börn. Verðlaunin voru afhent á ráðstefnu Nordisk Sprogkampagne sem haldin var á Nordatlantens Brygge í Kaupmannahöfn 30. nóv. sl.