Fyrirlestrarsalur tileinkaður Vigdísi
![]() |
Í tungumálamiðstöðinni verður glæsilegur fyrirlestrasalur sem tileinkaður verður Vigdísi Finnbogadóttur.
Salurinn verður búinn hátæknibúnaði og fullkominni aðstöðu til fyrirlestrahalds. Í tengslum við salinn verða sérútbúin túlkunarherbergi sem nýta má á ráðstefnum og við þjálfun nemenda í þýðingafræðum.
Fyrirlestrasalurinn verður notaður við sérstök tækifæri, t.d. í tengslum við ráðstefnur, hátíðafundi eða fyrirlestrahald.





