Íslenska English Dansk Svenska Deutsch Espanol Francais Japanese Chinese Concat us
Þú ert hér:

Geir Sigurðsson

Geir Sigurðsson er dósent í kínverskum fræðum og forstöðumaður Konfúsíusarstofnunarinnar Norðurljósa og ASÍS – Asíuseturs Íslands við Háskóla Íslands.

Geir lauk Ph.D. gráðu í heimspeki með áherslu á kínverska heimspeki frá Hawaii-háskóla, Bandaríkjunum, árið 2004. Á árunum 2001-3 stundaði hann nám í kínversku og heimspeki við Renmin háskóla í Beijing, Kína, og 1998-9 kínverskunám við Háskólann í Kiel í Þýskalandi. Hann lauk MA gráðu í heimspeki frá Cork-háskóla á Írlandi árið 1997 og BA gráðu í heimspeki og félagsfræði frá Háskóla Íslands árið 1994.

Rannsóknir Geirs snúast öðru fremur um samanburð á kínverskri og vestrænni heimspeki og taka einkum á menntun, siðfræði, einstaklingsþroska og lífslist. Á seinni árum hefur áhersla hans verið á konfúsíanisma, daoisma, fyrirbærafræði og þýsku hughyggjuna.

Aðsetur: Nýi Garður. skrifstofa 102, sími 525-4157, netfang: geirs@hi.is.

Ritaskrá Geirs sem nær yfir síðastliðin fimm ár má sjá hér að neðan. Ítarlegri rita- og ferilskrá má nálgast hér: Geir Sigurðsson, rita-og ferilskrá (pdf snið)

 
Ritaskrá

Fræðigreingar og bókakaflar

2010
“Towards a Creative China: Education in China“. The Irish Asia Strategy and Its China Relations. 爱尔兰的亚洲战备与中爱关系 1999-2009, ritstj. Fan Hong og Jörn-Carsten Gottwald (Amsterdam: Rozenberg Publishers, 2010): 61-79.

“In Praise of Illusions: Giacomo Leopardi‘s Ultraphilosophy”. Nordicum-Mediterraneum. Icelandic E-Journal of Nordic and Mediterranean Studies 5:1 (2010): http://nome.unak.is.

„Kana-Konfúsíus“. Væntanleg í riti Menntavísindasviðs HÍ um John Dewey.

„Arkað um á leið konfúsíanismans“. Væntanleg í riti Siðfræðistofnunar HÍ.

„Jafngildir heimar: um náttúrusýn í daoisma“. Væntanleg í Ritinu 2010.

2009
“Where to Place One’s Hands and Feet: Toward a Confucian Sociology of Tradition.” Chinese Culture and Globalization: History and Challenges for the 21st Century. Proceedings of the Eight Conference of the Nordic Association of Chinese Studies, ritstj. Torbjörn Lodén, Helena Löthman og Lena Rydholm (Stokkhólmur og Uppsala: Háskólarnir í Stokkhólmi og Uppsala, 2009): 41-62.

2008
“Defeatists, Cynics and Pragmatists. The Birth of Philosophy from the Spirit of War.” Philosophieren über den Krieg. War in Eastern and Western Philosophies, ritstj. Hans-Georg Möller and Günter Wohlfart (Berlin: Parerga, 2008): 61-80.

„Ritdómur um Rediscovering Confucianism. A Major Philosophy of Life in East Asia, eftir Torbjörn Lodén.“ Journal of Chinese Philosophy (2008): 535-539.

„Ritdómur um Social Change in Contemporary China: C.K. Yang and the Concept of Institutional Diffusion, ritstj. Wenfang Tang og Burkart Holzner.“ China Information 22:1 (2008): 185-186.

2007
„Fjölmenning og fjölhæfni barnaheimspekinnar: Hugleiðingar utan úr heimi.“ Afmælisrit Háskólans á Akureyri 2007, ritstj. Hermann Óskarsson (Akureyri: Háskólinn á Akureyri): 75-91.

“‘Initiating While not Proceeding to the End’: A Confucian Response to Indoctrination.” Educations and Their Purposes: A Conversation Among Cultures, ritstj. Roger T. Ames og Peter Herschock (Honolulu: University of Hawaii Press, 2007): 257-270.

“Making Social and Historical Sense: A Confucian-Phenomenological Dialogue”. Acta Orientalia Vilnensia 8:2 (2007): 81-93.

„Ritdómur um Consuming China: Approaches to Cultural Change in Contemporary China, ritstj. Kevin Latham, Stuart Thompson og Jakob Klein.“ China Information 21:2 (2007): 355-356.

„Ítardómur um Mao: The Unknown Story, eftir Jung Chang og Jon Halliday.“ Saga, tímarit sögufélags 45:1 (2007): 181-194.


Fyrirlestrar á árinu

“Confucian Republic of China? On Confucianism as a Viable Foundation for China‘s Future”; XVIII Biennial Conference of the European Association of Chinese Studies (EACS), Riga, Lettlandi, 14.-18. júlí 2010.

“Losing One‘s Self on the Way”; Preserving the Future: Sustainability of Language, Culture and Nature, ráðstefna Stofnunar Vigdísar Finnbogadóttur í erlendum tungumálum, 15.-17. apríl 2010.

“无己: Daoist Deconstructions of Self”; Inaugural Daoist Salon, Zhengzhou, Kína, 22.-26. mars 2010.