Hönnunarsamkeppni um hús Vigdísarstofnunar hafin

Framkvæmdasýsla ríkisins, f.h. Háskóla Íslands býður til opinnar hönnunarsamkeppni (framkvæmdasamkeppni) um byggingu fyrir Stofnun Vigdísar Finnbogadóttur í erlendum tungumálum.
Um er að ræða u.þ.b. 4000 m² byggingu, en þar af er um 1000 m² bílageymsla neðanjarðar, sem hýsa mun Stofnun Vigdísar Finnbogadóttur í erlendum tungumálum og er staðsett vestan Suðurgötu í Reykjavík.
Tvö fyrirspurnartímabil eru í samkeppninni og lýkur því fyrra 19. janúar 2012 en því síðara 7. mars 2012. Skilafrestur tillagna er 22. mars 2012, fyrir kl. 16:00 hjá Ríkiskaupum.
Veitt verða þrenn verðlaun að heildarfjárhæð 10 milljónir kr.
Gert er ráð fyrir að hönnun verði lokið og útboðsgögn tilbúin í janúar 2013 og að framkvæmdir hefjist í maí 2013 og þeim verði lokið í ágúst 2014.
Samkeppnin fer fram í samvinnu við Arkitektafélag Íslands og er auglýst á EES.
Nánari upplýsingar er að finna í samkeppnislýsingu sem er aðgengileg á vef Ríkiskaupa,
www.rikiskaup.is útboðsnúmer 15164.
Til að nálgast ítargögn verður að skrá sig til þátttöku á vefnum en gögn verða einnig fáanleg, gegn framvísun staðfestingar á þátttöku og 3.500,- kr. greiðslu, hjá Ríkiskaupum, Borgartúni 7c, 105 Reykjavík. Skrifstofa Ríkiskaupa er opin virka daga frá kl. 9:00 – 15:00. Slóðin á vef Ríkiskaupa er http://www.rikiskaup.is/utbod/utb/15164
Markmið samkeppninnar er að fá fram tillögur um hönnun byggingar og lóðar Stofnunar Vigdísar Finnbogadóttur í samræmi við samkeppnislýsinguna. Ætlast er til að hönnun byggingarinnar falli vel að því umhverfi þar sem hún mun rísa. Gert er ráð fyrir að byggingin muni laða að sér marga gesti, innlenda sem erlenda, og skal hönnun hússins taka mið af því og að hluti þess verði opinn almenningi. Lögð er áhersla á að innra skipulag verði hnitmiðað og falli vel að þeirri starfsemi sem á að vera í húsinu, bæði m.t.t. aðkomu almennings, þjónustu, vinnuaðstöðu nemenda og kennara og loks m.t.t. breytilegrar notkunar einstakra rýma. Við mat á tillögum verður horft til þess að lausnir séu einfaldar og leiði til vandaðrar og hagkvæmrar byggingar. Undirbúningur verkefnisins hefur m.a. falið í sér gerð frumathugunar sem byggingarnefnd vann.
Stefnt er að vottun byggingarinnar samkvæmt BREEAM-staðli og skal hönnun taka mið af því. Að lokinni samkeppni er gert ráð fyrir að vinningshafi myndi hönnunarteymi um tillöguna með þeim hönnuðum sem að verkinu koma, t.d. arkitektum, verkfræðingum, innanhússhönnuðum og öðrum þeim hönnuðum sem þarf til að mynda heildstætt hönnunarteymi. Miðað er við að byggingin verði tekin í notkun í ágúst 2014.




