Hrefna Ingólfsdóttir

Hrefna Ingólfsdóttir er verkefnisstjóri hjá Stofnun Vigdísar Finnbogadóttur í erlendum tungumálum.
Hrefna lauk MBA gráðu frá Háskólanum í Reykjavík árið 2007 og B.A. prófi í stjórnmálafræði með fjölmiðlafræði sem aukagrein frá Háskóla Íslands 1990. Hún hefur 20 ára reynslu af kynningarmálum, almannatengslum, fjárfestatengslum og markaðsmálum.
Aðsetur: Nýi Garður. skrifstofa 103, sími 525-4191, netfang: hrefnai@hi.is
Starfsferill
2007-2010 Forstöðumaður Samskiptasviðs Alfesca – (Head of Corporate Communications) með starfsvið aðallega á Íslandi og í Frakklandi
2001-2005 Sérfræðingur hjá Sendiráði Japans á Íslandi
1999-2001 Forstöðumaður upplýsingaveitna Símans. Í dag er mest af þeirri starfsemi undir merkjum Já.
1998-1999 Forstöðumaður notendaþjónustu Landssímans m.a. reikningagerðar og þjónustuvers
1997-1998 Forstöðumaður upplýsingadeildar og kynningarmála Símans
1990-1996 Blaðafulltrúi Pósts og síma
Blaðamaður á Morgunblaðinu með skóla
Menntun
2007 MBA gráða frá Háskólanum í Reykjavík
1998 Misserislangt nám í stjórnun starfsmannamála hjá Endurmenntunarstofnun H.Í.
1990 B.A. próf í stjórnmálafræði með fjölmiðlafræði sem aukagrein frá H.Í. Lokaritgerðin fjallaði um Sameinuðu Þjóðirnar.
1984 Stúdent frá Menntaskólanum í Reykjavík
1980 Lauk grunnskólaprófi frá Kvennaskólanum í Reykjavík
Starfsnám með áherslu á fjárfestatengsl hjá fjárfestingarbanka í London (Sumarið 2006) Vann m.a. skýrslu um tækifæri á íslenska fjármagnsmarkaðinum og lífeyrissjóðakerfið fyrir bankann.
Tók námskeið hjá IEDC Bled School of Management í Slóveníu og hjá IESE Business School, University of Navarra í Barcelona sem hluta af MBA náminu við Háskólann í Reykjavík
Sat valda áfanga um stefnumótun, markaðsmál og stjórnun í viðskiptadeild Háskóla Íslands og lauk 18 einingum (36 ECTS) á vorönn 2001
Hlaut þjálfun í Stjórnunarskóla Símans (Á vegum Gallup og Skref fyrir skref)
Tók námskeið í gerð viðskiptaáætlana hjá Símennt Háskólans í Reykjavík
Annað
Hefur tekið virkan þátt í ýmsu félagastarfi og gegnt þar formennsku og öðrum trúnaðarstörfum í gegn um tíðina.
Hefur talað á fjölmörgum fundum og ráðstefnum hér heima og erlendis í tengslum við vinnu og sjálfboðaliðastörf.




