Íslenska English Dansk Svenska Deutsch Espanol Francais Japanese Chinese Concat us
Þú ert hér:

Icelandic Online

Icelandic Online, www.icelandiconline.is, er kennsluvefur í íslensku.

Vefurinn byggir á nýjustu tæknilausnum til að kenna erlend tungumál og þjálfa helstu færniþætti málsins. Með vefnámskeiðunum hafa verið þróaðir stuðningsmiðlar, til að mynda málfræðigrunnur og rafræn orðabók.

Vefurinn, Icelandic Online, var þróaður af kennurum og nemendum Háskóla Íslands í samvinnu við íslenskulektora við fimm evrópska háskóla en fyrsta námskeið var tekið í notkun árið 2004. Í dag eru um 67.000 manns skráðir notendur Icelandic Online en 600 manns heimsækja vefinn daglega. Aðgangur að vefnum er án endurgjalds.

Icelandic Online er samstarfsverkefni Stofnunar Vigdísar Finnbogadóttur í erlendum tungumálum, Hugvísindastofnun Háskóla Íslands, Stofnunar Árna Magnússonar í íslenskum fræðum, Fjölmenningarseturs, Fjölmenningar ehf. auk háskóla í Evrópu. Vefurinn hefur verið styrktur af Lingua-áætlun Evrópusambandsins, Nordplus sprog, Háskóla Íslands, Rannís og mennta- og
menningarmálaráðuneytinu.

Þriðjudaginn 7. september 2010 opnaði Frú Vigdís Finnbogadóttir, fyrrverandi forseti Íslands, þrjú ný
námskeð innan Icelandic Online, í Norræna húsinu.

Formaður verkefnisstjórnar er Birna Arnbjörnsdóttir, prófessor, ritsjórar eru Kolbrún Friðriksdóttir, aðjúnkt, og Halldóra Þorláksdóttir en Bjarki Már Karlsson er tæknistjóri. 

Skrifstofa verkefnisins er hjá Hugvísindastofnun Háskóla Íslands á 3. hæð í Nýja Garði.