Japanshátíð á laugardaginn í áttunda sinn
Japanshátíð verður haldin laugardaginn 28. janúar á Háskólatorgi. Hátíðin er skipulögð í samvinnu Sendiráðs Japans á Íslandi og nemenda í Japönsku máli og menningu á Hugvísindasviði Háskóla Íslands.
Japanshátíðin hefur verið haldin í janúar ár hvert síðan árið 2005. Hátíðin í ár er því sú áttunda í röðinni. Eitt af sérkennum Japanshátíðarinnar er að flest allt það sem gestum og gangandi er boðið upp á
að skoða er unnið og fram borið af nemendum í Japönsku máli og menningu við Hugvísindasvið Háskóla Íslands.
Stofnun Vigdísar Finnbogadóttur í erlendum tungumálum er einn samstarfsaðila hátíðarinnar.
Nemendurnir, um 60 talsins, hafa lagt sig alla fram um að skipuleggja og kynna hin ýmsu atriði sem tengjast japönsku máli og menningu á einstakan og skemmtilegan hátt. Félagsskapur fólks af japönskum uppruna á Íslandi hefur einnig lagt hönd á plóg og stendur meðal annars fyrir japanskri teathöfn og japönskum blómaskreytingum (ikebana). Þar að auki munu ýmis félög vera með sýningu á budo (bardagaíþróttum).
Gestum hátíðarinnar er boðið að kynna sér japanskt líf og menningu. Á meðal þess sem í boði er má nefna; japanska matargerðarlist, japanska skrautritun, og kynningu á japanskri tungu. Gestum er einnig boðið að
vera viðstaddir ekta japanska teathöfn og smakka á því sem þar er borið fram. Einnig stendur til boða að kynna sér japanska borðspilið igo. Hægt verður fyrir gesti að spreyta sig á karaoke ásamt því að sýnd verða brot úr japönskum bíómyndum og sjónvarpsþáttum. Á hátíðinni verður einnig boðið upp á fræðslu um japanska poppmúsík (J-pop), japanska tölvuleiki, anime og manga. Gestir geta þannig kynnt sér japanska dægurmenningu og hvað hún hefur upp á að bjóða.
Á aðalsviði Háskólatorgs verður haldin spurningakeppni um Japan og japanska menningu, þar sem gestir geta spreytt sig á skemmtilegum og léttum spurningum. Einnig verður boðið upp á lifandi tónlist. Í ár verður einnig sýning í anda noh leikhúsins.
Almennar upplýsingar um nám í japönsku, hina ýmsu skólastyrki og skiptinám við japanska háskóla verða aðgengilegar á hátíðinni. Auk þessa verður hægt að nálgast upplýsingar um Íslensk-Japanska Félagið, og Félag Japansmenntaðra á Íslandi.
Enginn aðgangseyrir er á hátíðina og hún er opin öllum þeim sem vilja sækja hana. Hátíðin hefst kl. 13:00 og mun hún standa yfir til kl. 17:00.
Allar nánari upplýsingar er að finna á http://www.japanfest.net/2012/
Til baka í fréttalistann



