Íslenska English Dansk Svenska Deutsch Espanol Francais Japanese Chinese Concat us
Þú ert hér:

Kallað eftir greinum í fjórða hefti "Milli mála"

22/02/2012

Milli málaRitnefnd SVF kallar er eftir greinum í fjórða hefti Milli mála, tímarits um erlend tungumál og menningu. Þetta hefti er tileinkað þemanu „tungumál“ – en þó verður  tekið við greinum um annað efni að einhverju leyti. Fræðimenn eru hvattir til að senda inn umfjöllun um nýjar bækur sem og þýðingar.

Sem fyrr verða birtar bæði ritrýndar (tvöföld blind ritrýni) og óritrýndar greinar í heftinu.

Eitt af einkennum Milli mála er að höfundum gefst kostur á að skila inn greinum á því tungumáli sem þeir helst kjósa.

Gert er ráð fyrir að heftið verði að þessu sinni um 200–250 síður. Viðmið vegna lengdar ritrýndra greina er um 5000–9000 orð. Hverri grein skal fylgja útdráttur á ensku og íslensku upp á u.þ.b. 100–200 orð.

Frestur til að skila greinum í þetta 4. hefti Milli mála er til 1. júní 2012. Allar fyrirspurnir og vinnuheiti á fyrirhugaðar greinar skulu sendar til Sigrúnar Á. Eiríksdóttur, ritstjóra á netfangið: sigrunei@hi.is

Til baka í fréttalistann