Íslenska English Dansk Svenska Deutsch Espanol Francais Japanese Chinese Concat us
Þú ert hér:

Menning og siðir í Jakútíu

16/02/2012

UdachnayaÞriðjudaginn 21. febrúar, kl. 17:00-18:00 mun listakonan Alexandra Kuregej Argunova flytja erindi á vegum rússneskunnar, Stofnunar Vigdísar Finnbogadóttur í erlendum tungumálum og sendiráðs Rússneska sambandsríkisins. Erindið nefnist: Jakútía – menning og siðir.

Þar mun Alexandra Kuregej fjalla um heimaland sitt, Jakútíu í Rússlandi.  Hún segir frá lifnaðarháttum,  menningu og tungumáli landsins – og fjallar um menningartengsl Jakútíu við Kína, Japan og Evrópu. Einnig mun Alexandra fjalla um málefni sem eru henni kær, s.s. friðarbaráttu, mátt menntunar og umgengni fólks við móður jörð.

Erindið verður flutt í móttökusal rússneska sendiráðsins að Garðastræti 33 (gengið inn um hlið til vinstri við sendiráðið).

Að erindinu loknu verður boðið upp á kaffi, te og kökur fyrir þá sem vilja.

Aðgangur er ókeypis og allir velkomnir.

Til baka í fréttalistann