Randi Benedikte Brodersen
Randi Benedikte Brodersen er lektor í dönsku við Háskóla Íslands
Hún er Cand.mag. í norrænum tungumálum og bókmenntum með hagnýt málvísindi og þýðingafræði sem aukagrein (1988), hefur auk þess lokið rannsóknanámskeiðum á doktorsstigi og
námskeiðum í kennslufræði erlendra tungumála og tölfræði.
Rannsóknasvið hennar er nútímadanska, félagsmálvísindi, málleg aðlögun (akkomodation, danskar mállýskur, hreintungustefna, málstefna, aðferðafræði, akademísk ritun og kennsla.
Hún vinnur nú að doktorsritgerð um mállega aðlögun, málnotkun og viðhorf til tungumála meðal Dana i Noregi. Einnig vinnur hún að tveimur bókum, kennslubók í textagreiningu og akademískri ritun ásamt greinasafni frá norrænu málþingi.
Aðsetur: Nýi Garður, skrifstofa 106, sími 525-4226, netfang: rbb@hi.is.




