Rannsóknir og verkefni
Fræðimenn Stofnunar Vigdísar Finnbogadóttur stunda margvíslegar rannsóknir á sviði tungumálakennslu, máltileinkunar, bókmennta, og menningarfræði. Stöðugt er verið að þróa nýjar aðferðir í tungumálakennslu og miðlun bókmennta og menningarfs mismunandi málheima og þjóða. Einnig fást margir við þýðingar, orðabókagerð og almennt kynningarstarf til að auka vægi tungumála í samfélaginu.
Rannsókasvið stofnunarinnar eru flokkaðar á eftirfarandi hátt:
- Tungumálakennsla og máltaka
- Bókmenntir og þýðingarfræði
- Málvísindi, málsöfn og orðabókagerð
Gerðir hafa verið samstarfssamningar um rannsóknir og kennara- og nemendaskipti við fjölmarga háskóla, þar sem þau tungumál sem heyra undir stofnunina eru kennd. Samstarfssamningar stuðla að alþjóðlegri rannsóknum og auðvelda nemendum að taka hluta tungumálanáms erlendis. Heimsóknir erlendra fræðimanna til stofnunarinnar eru tíðar og einnig starfa fræðimenn stofnunarinnar oft tímabundið erlendis við kennslu og rannsóknir.
Nákvæma lýsingu á rannsóknum ásamt samstarfsverkefnum Stofnunar Vigdísar Finnbogadóttur við einstaklinga og stofnanir má finna á síðunum til vinstri í veftrénu.
Yfirlit yfir miðlun rannsókna á árinu 2010 má sjá hér.




