Íslenska English Dansk Svenska Deutsch Espanol Francais Japanese Chinese Concat us
Þú ert hér:

Sigurður Pétursson

Sigurður Pétursson er lektor í grísku og latínu.

Sigurður lauk cand.mag. prófi i latínu og grísku frá Háskólanum í Árósum í Danmörku vorið 1973. Auk kennslu bæði í latínu og grísku við Háskóla Íslands frá hausti 1973 hefur Sigurður fengist við rannsóknir á ýmsum sviðum klassískra fræða en hefur þó einkum lagt áherslu á húmanisma almennt, áhrif hans hér á landi og þær bókmenntir sem Íslendingar sömdu á nýlatínu frá lokum sextándu aldar fram á nítjándu öld. Sigurður hefur flutt fjölda fyrirlestra á fræðasviðum sínum, sótt ráðstefnur bæði innan- og utanlands og fræðigreinar eftir hann hafa birst víða, frumsamdar á fimm tungumálum, íslensku, dönsku, ensku, þýsku og ítölsku.

Sigurður hefur átt mikið samstarf við norræna starfsbræður sína frá því á árinu 1986, bæði formlega við fimm ára rannsóknaverkefni á sviði nýlatínu á Norðurlöndum, sem skilaði miklum árangri, og við kennaraskipti og ýmiss konar málþing. Þar að auki hefur hann verið í miklum tengslum við ýmsa háskóla og starfsbræður á Ítalíu.

Sem stendur fæst Sigurður einkum við ritun fræðigreina og við það að semja inngang að fullgerðri þýðingu á löngu latínuriti eftir Jón Þorkelsson Skálholtsrektor frá 18. öld. Þar að auki vinnur hann einnig að samantekt og yfirliti á latneskum kveðskap Íslendinga frá því á sextándu öld fram á þá tuttugustu.

Aðsetur : Nýji Garður, skrifstofa 118, sími 525-4561, netfang: sigpet@hi.is.

Ritaskrá Sigurðar sem nær yfir síðastliðin fimm ár má sjá hér að neðan. Ítarlegri rita- og ferilskrá má nálgast hér: Sigurður Pétursson, rita- og ferilskrá (pdf snið).

 

Ritaskrá

Fræðigreinar og bókakaflar

2010:
“Hver var ókunni maðurinn, obscurus vir ?”, Menntun og menning í Skálholtsstifti 1620-1730, 97-110, ritstjóri Kristinn Ólason. Glíman,sérrit 1 (2010), Reykjavík 2010.

“Átjándu aldar latínusáldur”. Nokkrar handlínur bróderaðar handa Kristínu Bjarnadóttur sextugri 9. janúar 2010, 79-82, Menningar- og minningarsjóður Mette Magnussen, Reykjavík 2010.

2009:
“The Assimilation of the Icelander Skúli Þórðarson Thorlacius (1741-1815) and his Son Børge Thorlacius (1775-1829) into Danish Learned Society”, Studi anglo-norreni in onore di John S. Mckinnell, 459-476. Cagliari, Italia 2009.

“Latínumenning á 18. öld”,  Ísland í aldanna rás 1700-1799, 36-38 (bókin er í folio stærð). Reykjavík 2009.

“Hvað má lesa úr slitrum?”, 38 vöplur bakaðar og bornar fram Guðrúnu Ingólfsdóttur fimmtugri 1. maí 2009, 85-87. Reykjavík 2009.

“Arngrímur og Ovidius”, Milli mála. Ársrit Stofnunar Vigdísar Finnbogadóttur í erlendum tungumálum , 219-250. Reykjavík 2009.

“Il viaggio in Italia di Tómas Sæmundsson”, Terre scandinave in Terre d’Asti, Atti del I convegno internazionale, 142-149. Asti 2009.

2007:
“Á slóð húmanista á Íslandi” Ritið, 1/2007, 143-158. Reykjavík 2007.

“Saxo og Cardanus yderst mod Norden”, Album Amicorum. Festskrift til Karsten Friis-Jensen i anledning af hans 60 års fødselsdag/ Studies in Honour of Karsten Friis-Jensen on the Occasion of his Sixtieth Birthday, Renæssanceforum 3. 2007. http://www.renaessanceforum.dk_2007.htm (7 blaðsíður)

“Poeta felicissimus. Stefán Ólafsson (um 1619-1688)”. Í ljóssins barna selskap, 77-88. Listvinafélag Hallgrímskirkju og Stofnun Árna Magnússonar í íslenskum fræðum. Reykjavík  2007.

2006:
 “Húmanisti á Rauðasandi”. Ritið, 95-110. Reykjavík 2006.

“Hún eftir sig skildi það mannorð sem ber merkin af dyggðanna verkinu hér”. Árnesingur 7, 91-116. Selfoss 2006.

“Vitae memoria. Æviminning”. Brynjólfur biskup – kirkjuhöfðingi, fræðimaður og skáld, 11-18.  Reykjavík 2006.

 “Nugas accipe”. (Tak við lítilræði). Brynjólfur biskup – kirkjuhöfðingi, fræðimaður og skáld, 47-63. Reykjavík 2006.

“Ítalir í íslenskum bókahirslum: bókasafn Brynjólfs Sveinssonar” (Matteo Muratori og Sigurður Pétursson). Brynjólfur biskup – kirkjuhöfðingi, fræðimaður og skáld, 292-307. Reykjavík 2006.

 “Drög að ritaskrá þar sem Brynjólfs Sveinssonar er getið” (Umsjón Sigurður Pétursson). Brynjólfur biskup – kirkjuhöfðingi, fræðimaður og skáld, 308-319. Reykjavík 2006.

 “Gríska í kirkjugarðinum á Keldum”. Varði reistur Guðvarði Má Gunnlaugssyni fimmtugum 16. september 2006, 109-112. Reykjavík 2006.

 

Fyrirlestrar og fræðileg erindi á árinu

“Optata tandem lux venit (Loks rennur langþráður dagur upp)” Fyrirlestur fluttur 6. mars 2010. Háskóli Íslands. Hugvísindaþing 5-6. mars 2010.

“Lilium. The Icelandic translation of the medieval poem” Fyrirlestur fluttur á ráðstefnunni Preserving the Future, 15.-17. apríl 2010 í Reykjavík.

“Klassisk retorik i islandske omgivelser”. Fyrirlestur fluttur á norrænni ráðstefnu, Mjúk málsnilld orðanna, sem haldin var í Skálholti 4.-6. júní 2010.