Íslenska English Dansk Svenska Deutsch Espanol Francais Japanese Chinese Concat us
Þú ert hér:

Starf ráðstefnutúlka og kröfur til þeirra

19/01/2012

logo SVFKunteel Barua verður gestur á opnum fundi sem Stofnun Vigdísar Finnbogadóttur og Bandalag þýðenda og túlka á Íslandi standa fyrir á miðvikudag.

Kunteel Barua er túlkur við Evrópusambandið og hefur komið að námi fyrir ráðstefnutúlka við H.Í. sem ráðgjafi.
Hann heldur erindi þar sem hann mun tala um starf túlka við Evrópusambandið, reynslu sína sem túlkur og þær kröfur sem gerðar eru um menntun túlka.

Nám í ráðstefnutúlkun við Háskóla Íslands hófst haustið 2011. Þeir sem starfa við þýðingar og túlkun hér á landi og þeir sem hafa hug á slíku starfi eru hvattir til að koma og hitta Kunteel Barua og fræðast um störf atvinnutúlka.
Fundurinn sem fer fram á ensku verður haldinn miðvikudaginn 25. janúar og hefst kl. 13:30 í stofu 106 að Neshaga 16. Allir eru velkomnir.

Til baka í fréttalistann