Styrktaraðilar 2008 & 2009
Stofnunin fær árlegt framlag frá Háskóla Íslands en auk þess hafa fyrirtæki, stofnanir og rannsóknar- og menninarsjóðir lagt stofnuninni lið á árunum 2008 og 2009.
Styrktaraðilar 2008 & 2009 voru:
Aðalstyrktaraðili árið 2008 var Straumur Burðarás fjárfestingarbanki sem styrkti starfsemina með 5 milljón króna framlagi þriðja árið í röð, en vegna bankahrunsins kom umsaminn styrkur ekki til greiðslu á árinu 2009.
Promens hf. styrkti stofnuna að upphæð 1,5 miljónir króna, annars vegar árið 2008 og hins vegar árið 2009. Í samningnum við Promens er kveðið á um 1,5 milljóna króna árlegt framlag til stofnunarinnar til ársins 2011 til markvissrar uppbyggingar hennar.
Prentsmiðjan Oddi, þá Gutenberg hf., styrkti stofnunina bæði árin með 1 milljón króna framlagi hvort ár. Samkvæmt samkomulagi við Odda mun fyrirtækið veita Stofnun Vigdísar Finnbogadóttur árlegan fjárstyrk að upphæð 1 milljón króna til ársins 2011.
Alþjóðleg tungumálamiðstöð
Stofnun Vigdísar Finnbogadóttur hefur lagt áherslu á að alþjóðleg tungumálamiðstöð verði stofnuð og hefur hefur menntamálaráðherra sótt um viðurkenningu á þessari starfsemi til UNESCO.
Til þess að hin alþjóðlega tungumálamiðstöð verði að veruleika hefur verið sett á laggirnar sérstök alþjóðleg ráðgjafanefnd og hefur stofnunin hlotið 8 milljón króna styrk (500.000 SEK) frá Menningar – og rannsóknarsjóði sænska seðlabankans (Riksbankens Jubileumsfond) til að mæta kostnaði við starfsemi ráðgjafanefndarinnar. Auk þess styrkti Norska orkufyrirtækið Nord-Trøndelag Elektrisitetsverk verkefnið haustið 2009 með styrk að upphæð 2 milljónir króna og í lok árs hlaut stofnunin rúmrar einnar milljóna króna styrk um síðustu áramót frá norska fyrirtækinu SpareBank 1 SMN og skyldi þeirri fjárhæð einnig varið til alþjóðlegu tungumálamiðstöðvarinnar.
Heimasíða Vigdísar Finnbogadóttur
Utanríkisráðuneytið styrkti stofnunina um 2 milljónir króna á árinu 2009 til að mæta kostnaði vegna vinnu við gerð heimasíðu fyrir Vigdísi Finnbogadóttir, www.vigdis.is, sem var opnuð 19. júní 2009.
Evrópski tungumáladagurinn
Mennta- og menningarmálaráðuneytið styrkti stofnunina með 200.000 kr. framlagi árið 2008 og 300.000 kr. framlagi árið 2009 til að fjármagna árlega hátíðardagskrá og ráðstefnu í tengslum við evrópska tungumáladaginn.
Styrkur til undirbúnings íslenskar-frönskrar orðabókar
Í kjölfar kynningar í Frakklandi í desember 2007 hlaut stofnunin í upphafi árs 2008 styrk að upphæð 10.000 evrur frá Banque de Rothschild. Ákveðið var að verja þeim fjármunum til undirbúnings nýrrar íslenskar-franskrar orðabókar.
Styrkur til að halda ráðstefnuna Cultures in Translation
Ráðstefnan Cultures in Translation, sem fram fór í desember 2008 var styrkt af Norræna menningarsjóðnum um 60.000 DKK og Norræna ráðherranefndin veitti styrk að upphæð 25.000 DKK til að standa straum af kostnaði við sérstaka norræna málstofu á ráðstefnunni. Ráðstefnan var einnig styrkt með óbeinum hætti af sendiráðum Danmerkur, Noregs, Svíþjóðar og Finnlands ásamt Bláa Lóninu.




