Íslenska English Dansk Svenska Deutsch Espanol Francais Japanese Chinese Concat us
Þú ert hér:

Styrktarsjóður Stofnunar Vigdísar Finnbogadóttur

Markmið Styrktarsjóðs Stofnunar Vigdísar Finnbogadóttur er að stuðla að vexti og viðgangi stofnunarinnar. Sjóðurinn veitir styrki, fjárframlög og annan stuðning við verkefni af ýmsu tagi.

Rannsóknir og verkefni stofnunnarinnar:

  • rannsóknir á erlendum tungumálum: kennslufræði erlendra mála, máltöku, táknfræði, þýðingafræði, málfræði, málvísindi, menningarfræði, bókmenntir og notagildi tungumála í atvinnulífi,
  • útgáfur ritverka á fræðasviðum stofnunarinnar,
  • ráðstefnur- og fyrirlestrahald,
  • þróun kennslugagna í erlendum tungumálum,
  • samstarf við erlendar stofnanir á fræðasviðum stofnunarinnar,
  • önnur verkefni sem tengjast starfsemi stofnunarinnar að mati sjóðsstjórnar

Sjóðurinn var stofnaður árið 2003 af Háskóla Íslands og Kaupþingi banka. Framlög í sjóðinn hafa komið frá fyrirtækjum, stofnunum, menningar- og rannsóknarsjóðum og einstaklingum og þau eru ómetanlegur stuðningur við starfsemi stofnunarinnar.

Sjóðsstjórn skipa

  • Frú Vigdís Finnbogadóttir, fv. forseti Íslands
  • Ásmundur Stefánsson, fv. bankastjóri
  • Hrönn Greipsdóttir, forstöðumaður Faktoring
  • Ragnheiður Jónsdóttir, formaður STÍL
  • Salvör Jónsdóttir, skipulagsfræðingur
  • Sigurður Helgason, stjórnarformaður Icelandair
  • Vésteinn Ólason, prófessor
  • Þórður Sverrisson, forstjóri Nýherja

 

Framlög í Styrktarsjóðinn

Framlög í Styrktarsjóðinn má leggja inn á reikning:

Reikningsnúmer: 0111-26-001292
Kennitala: 571292-3199
IBAN: IS86 0111 2600 1292 5712 9231 99
Swift code: NBIIISRE

Nánari upplýsingar veitir forstöðumaður stofnunarinnar Auður Hauksdóttir.