Íslenska English Dansk Svenska Deutsch Espanol Francais Japanese Chinese Concat us
Þú ert hér:

Susanne Antoinette Elgum

Susanne Antoinette Elgum er aðjúnkt í dönsku við Háskóla Íslands.

Susanne lauk MSc-gráðu í stjórnmálafræði frá Kaupmannahafnarháskóla 1997. Auk þess tók hún sálfræði sem aukagrein á BA-stigi frá sama skóla 2005.

Starfsmannastjóri í kauphallarskráðri alþjóðlegri iðnaðarsamsteypu þar sem hún sinnti margvíslegum verkefnum: fyrirtækjaþróun, starfsmannaþróun og starfslokamálefnum, nýliðun og prófum, stuðningur og þjálfun stjórnenda og starfsmanna, námskeiðahald, stefnumótun og gerð ferla.
Áður hefur hún unnið hjá alþjóðlegum ráðgjafafyrirtækjum sem ráðgjafi við leit að nýjum stjórnendum (headhunting), ráðgjöf á fyrirtækjasviði við ráðningu stjórnenda og sérfræðinga við verkefni eins og: einstaklings, fyrirtækja- og persónuráðgjöf, nýliðun og val, viðtöl, persónugreiningu, verkefnastjórnun og rannsóknir.

Meðal námskeiða Susanne eru: Dönsk mál og málnotkun I-III, Dönsk menning, saga og þjóðfélag, Danskir fjölmiðlar, Danskt mál og menning á Schæffergården og Sjálfsnám í dönsku I og II.

Aðsetur: Nýi Garður, skrifstofa 009, sími 525-5419, netfang: sae@hi.is.

Ferilskrá Susanne á pdf sniði: Susanne Elgum, rita og ferilskrá.

 

Starfsferill

2008-            Aðjúnkt í dönsku, Hugvísindasvið, Háskóla Íslands
2002-2005    Human Resource Partner, GN ReSound as, København
2001-2002    Consultant, Futurestep-Korn/Ferry International, København
1997-2000    Consultant Analyst, PA Consulting Group A/S, København
1996-1997    Research Associate, Heidrick & Struggles AB, København

Menntun

2005  Aukagrein í sálfræði frá Kaupmannahafnarháskóla.

1997 M.Sc. í stjórnmálafræði frá Kaupmannahafnarháskóla
.