Íslenska English Dansk Svenska Deutsch Espanol Francais Japanese Chinese Concat us
Chinese University of Iceland
You are here:

Latest news

More news >
  • „Af hverju þýska?“

    23. mars 2012More >
  • Menningarsjóður VISA styrkir Stofnun Vigdísar Finnbogadóttur með myndarlegum hætti

    09. júní 2011

    Fimmtudaginn 19. apríl sl. tilkynnti stjórn Menningarsjóðs VISA um úthlutun styrks til Stofunar Vigdísar Finnbogadóttur og sjö annara aðila. Afhending styrkjanna fór fram í Listasafni Sigurjóns Ólafssonar við hátíðlega athöfn.  Það voru þau Björk Þórarinsdóttir, stjórnarformaður Valitor og Viðar Þorkelsson, forstjóri fyrirtækisins, sem afhentu styrkina, en þau eiga sæti í stjórn Menningarsjóðs VISA ásamt Kristjáni Þ. Harðarsyni, sviðsstjóra Þróunar- og kynningarsviðs VALITOR. Vigdís Finnbogadóttir fv. forseti veitti styrknum viðtöku fyrir hönd stofnunarinnar og flutti við það tækifæri stutt ávarp. Hún þakkaði Menningarsjóði VISA rausnarlegt framlag, sem hún sagði að mundi nýtast vel til góðra verka. Þetta er í annað sinn, sem Menningarsjóður VISA styrkir Stofnun Vigdísar Finnbogadóttur og skal styrknum varið til frekari uppbyggingar stofnunarinnar. Eins og kunnugt er vinnur Stofnun Vidísar Finnbogadóttur nú að því að koma á fót alþjóðlegri tungumálamiðstöð við Háskóla Íslands.

    More >
  • Sjónvarpsþáttur um starfsemi Stofnunar Vigdísar Finnbogadóttur

    31. maí 2011

     

    VigdísÍ kvöld er á dagskrá sjónvarpsins vandaður þáttur um framtíðarverkefni Stofnunar Vigdísar Finnbogadóttur í erlendum tungumálum. Það verður rætt við frú Vigdísi og nokkra fræðimenn um starfsemi stofnunarinnar og framtíðarsýn. Einnig munu þjóðþekktir rithöfundar fjalla um erlend tungumál og menningu og gildi þeirra fyrir einstaklinga og samfélag. Þátturinn er um hálftíma langur og verður sýndur í Ríkissjónvarpinu kl. 21:25 í kvöld og endursýndur laugardaginn 4. júní kl. 13:00.
    Viðar Víkingsson hafði allan veg og vanda af gerð þáttarins, sem var unnin fyrir tilstilli Vina Vigdísarstofnunar.  

    More >