Café Lingua er gátt inn í mismunandi menningarheima og er tilvalinn vettvangur fyrir þá sem vilja efla tungumálakunnáttu sína og hafa áhuga á að spreyta sig á ýmsum tungumálum. Markmið Café Lingua er að virkja þau tungumál sem hafa ratað til Íslands og hafa auðgað mannlíf og menningu. Fólk með íslensku sem annað mál fær tækifæri til þess að tjá sig á íslensku sem og að kynna móðurmál sitt fyrir öðrum.
Viðburðir haustsins fara fram í menningarhúsum Borgarbókasafnsins, í Veröld – húsi Vigdísar og í Stúdentakjallara Háskóla Íslands.Allir sem hafa áhuga á tungumálum og vilja leggja sitt af mörkum til tungumálalandslags Reykjavíkur eru velkomnir. Þátttaka ókeypis.
Café Lingua er samstarfsverkefni Borgarbókasafnsins og Alþjóðlegrar miðstöðvar tungumála og menningar sem hefur aðsetur í Veröld – húsi Vigdísar.Aðrir samstarfsaðilar:Mála – og menningardeild, íslenska sem annað mál, nemendafélögin Linguae og Huldumál við Háskóla Íslands og Íslenskuþorpið.