Efnt verður til málþings á degi íslenska táknmálsins, þann 11. febrúar 2019, á vegum Málnefndar um íslenskt táknmál og Rannsóknastofu í táknmálsfræðum við HÍ. Málþingið verður haldið í stofu 023 (fyrirlestrarsal) í Veröld – húsi Vigdísar, kl. 16:30-18:00. Forseti Íslands, Guðni Th. Jóhannesson mun setja málþingið, sem fer fram á íslensku og íslensku táknmáli.
Dagskrá:
- Setning: Forseti Íslands, herra Guðni Th. Jóhannesson setur málþingið
- Um uppruna og þróun íslenska táknmálsins / Valgerður Stefánsdóttir fyrrum forstöðukona Samskiptamiðstöðvar heyrnarlausra og heyrnarskertra
- Börnin og snjalltækin: Íslenska og íslenskt táknmál í ölduróti samtímans / Sigríður Sigurjónsdóttir prófessor í íslensku við Háskóla Íslands
- Þinglok: Bryndís Guðmundsdóttir formaður Málnefndar um íslenskt táknmál varpar hulunni af logoi málnefndarinnar og slítur þinginu
Á milli erinda verða sýnd innslög frá samfélagi döff
Sjá nánar á vefsíðu Háskóla Íslands.
Aðrar fréttir