Áttundi árgangur af Milli mála – Tímarit um erlend tungumál og menningu er nú komið út.
Milli mála er gefið út af Stofnun Vigdísar Finnbogadóttur í erlendum tungumálum (SVF) við Háskóla Íslands. Milli mála birtir ritrýndar fræðigreinar á sviði erlendra tungumála, bókmennta, þýðinga, málvísinda og menntunarfræði en einnig birtir tímaritið þýðingar, viðtöl, ritdómar eða bókakynningar eftir því sem rúm leyfir hverju sinni.
Í þessu hefti eru tíu greinar skrifaðar á íslensku, ensku, frönsku, spænsku og þýsku. Níu greinanna eru ritrýndar en ein flokkast fremur sem fræðileg ritgerð eða hugleiðing („esseyja“). Loks eru í heftinu þrjár þýðingar.
Ritstjórar Milli mála eru Gísli Magnússon, lektor í dönskum bókmenntum og Þórhallur Eyþórsson, prófessor í enskum málvísindum.
Efni:
Gísli Magnússon og Þórhallur Eyþórsson
Frá ritstjórum
Ritrýndar greinar
Anton Karl Ingason, Einar Freyr Sigurðsson og Jim Wood
,,Þáttur var tekinn í hlaupinu af Höskuldi.“ Samspil fastra orðasambanda og setningagerðar
Pilar Concheiro Coello
Motivación y redes sociales en la enseñanza de ELE
Erla Erlendsdóttir
Quilla, branque, estrave…Términos náuticos de origen nórdico
François Heenen
Imparfait et modalité
Hólmfríður Garðarsdóttir
Central American Coastal Identity: Multiple Faces of Mestizaje in Narrative by the Costa Rican novelist Anacristna Rossi
Alexander Künzli og Gunnel Engwall
Le français strindbergien en traduction : l’exemple du Plaidoyer d’un fou
Margrét Jónsdóttir
Beygingarsaga nafnsins Ester
Anne Elisabeth Sejten
Une pensée de l’eau. Pour une lecture bachelardienne de l’œuvre d’Albert Camus
Svavar Hrafn Svavarsson
Grímur Thomsen og framandgerving Pindars
Fræðileg ritgerð
Wolf Wucherpfennig
Kunst und Vandalismus im Zeichen der Moderne
Þýðingar
Hólmfríður Garðarsdóttir
Um höfundinn Carmen Lyra
Carmen Lyra
Stefanía
Erla Erlendsdóttir
Um Doru Alonso
Dora Alonso
Gamla konan
Ásdís R. Magnúsdóttir
Nokkur orð um esseyjur (Essais) Michels de Montaigne
Michel de Montaigne
Að iðka heimspeki er ígildi þess að læra að deyja
Höfundar, þýðendur og ritstjórar
Authors, translators and editors
Nánar: http://millimala.hi.is/is/httpmillimala-hi-isisarg-1-2009/milli-mala-2016/