Árið 1925 komu sjaldséðir gestir til Ísafjarðar, tæplega 90 Grænlendingar. Á sýningunni er fjallað um hvernig þessi heimsókn átti rætur að rekja til deilna Dana og Norðmanna um yfirráð á hluta Austur-Grænlands, hvernig tekið var á móti gestunum á Ísafirði, athyglina sem hún vakti og hvaða þýðingu hún hafði fyrir samskipti þjóðanna.
Sumarliði R. Ísleifsson sýningarhöfundur sagði nánar frá sýningunni í útvarpsviðtali í þættinum Samfélagið sem heyra má hér og í viðtali sem birtist á vefsíðu Háskóla Íslands hér.
Sýningin er í sýningarsal Veraldar – húss Vigdísar, 17. janúar til 30. júní 2019, og á Landsbókasafni Íslands – Háskólabókasafni.
Opnun sýningarinnar verður í Veröld – húsi Vigdísar, fimmtudaginn 17. janúar kl. 16:00. Boðið verður upp á léttar veitingar. Allir velkomnir.
Aðstandendur sýningarinnar: Stofnun Vígdísar Finnbogadóttur í erlendum tungumálum, Alþjóðleg miðstöð tungumála og menningar, Landsbókasafn Íslands – Háskólabókasafn og Safnahúsið á Ísafirði
Sýningarhöfundur: Sumarliði R. Ísleifsson
Sýningarhönnun í Veröld – húsi Vigdísar: Björn G. Björnsson
Sýningarhönnun í Landsbókasafni Íslands – Háskólabókasafni: Ólafur Engilbertsson
Grafísk hönnun: Helga Dögg Ólafsdóttir
Styrktaraðilar sýningarinnar: Prófessorsembætti Jóns Sigurðssonar við Háskóla Íslands, Mennta- og menningarmálaráðuneytið, Rannsóknarsjóður Hugvísindastofnunar, Alþjóðleg miðstöð tungumála og menningar, Vestnorræni höfuðborgarsjóðurinn og Stofnun Vígdísar Finnbogadóttur í erlendum tungumálum.