Spáð er óveðri á höfuðborgarsvæðinu föstudaginn 14. febrúar og skrifstofan í Veröld – húsi Vigdísar verður því lokuð og útgáfuhófi sem vera átti í húsinu er frestað til 20. febrúar kl. 16:30. Engin kennsla verður í Háskóla Íslands.
Rektor Háskóla Íslands hefur sent meðfylgandi skeyti á starfsfólk og nemendur skólans vegna yfirvofandi óveðurs:
„Kæra starfsfólk og nemendur.
Það stefnir í vonskuveður á morgun, föstudag. Gefin hefur verið út appelsínugul/rauð viðvörun fyrir höfuðborgarsvæðið og mun kennsla á vegum Háskóla Íslands falla niður á morgun. Ég hvet alla til að fara varlega og fylgjast með tilkynningum Veðurstofu Íslands. Bent er á að starfsfólk sem á erfitt með að mæta til vinnu vegna veðurs vinni heima eftir því sem tök eru á.
Jón Atli Benediktsson, rektor“