í Fréttir, News, VIMIUC

Fundur stjórnar Styrktarsjóðs Stofnunar Vigdísar Finnbogadóttur í erlendum tungumálum var haldinn þann 17. september 2021 í Veröld – húsi Vigdísar. Á fundinum var ákveðið að veita á árinu styrki að upphæð 5.520 þúsund krónur til eftirfarandi verka:

1. Milli mála – tímarit um tungumál og menningu, hefðbundið hefti 2022 – 860.000 kr.
2. Milli mála – tímarit um tungumál og menningu, sérhefti um annarsmálsfræði og fjöltyngi 2022 – 860.000 kr.
3. Sögur Belkíns. Smásagnasafn eftir Aleksander Púshkín – 500.000 kr.
4. Fríða og Dýrið. Franskar sögur og ævintýri fyrri alda – 500.000 kr.
5. Smárit SVF, með verkum eftir Dorthe Jørgensen, Leïlu Slimani og Simon Leys – 500.000 kr.
6. Tvímála bók með úrvali ljóða Hannesar Hafstein á íslensku og í enskri þýðingu – 800.000 kr.
7. LEXÍA, íslensk frönsk veforðabók – 1.500.000 kr.

Styrktarsjóður Stofnunar Vigdísar Finnbogadóttur hefur verið starfræktur frá árinu 2003 og er markmið hans að stuðla að vexti og viðgangi Stofnunar Vigdísar Finnbogadóttur í erlendum tungumálum. Vigdís Finnbogadóttir hefur verið formaður stjórnar sjóðsins frá upphafi, en auk hennar sitja í stjórninni:

• Ragnheiður Jónsdóttir menntunarfræðingur
• Sigríður Th. Erlendsdóttir sagnfræðingur
• Steinþór Pálsson bankastjóri
• Vésteinn Ólason prófessor emeritus

Varamaður er Salvör Jónsdóttir skipulagsfræðingur.

Aðrar fréttir
X