Auður Hauksdóttir
Prófessor emeritus í dönsku við Háskóla Íslands

Aðsetur: Veröld – hús Vigdísar, skrifstofa 342, sími 525-4209,
netfang: auhau@hi.is.
Háskóli Íslands
Stofnun Vigdísar Finnbogadóttur
Veröld – hús Vigdísar
Brynjólfsgötu 1
IS-107 Reykjavik
S: 525-4000
Auður Hauksdóttir er prófessor emeritus í dönsku við Háskóla Íslands.
Auður lauk doktorsnámi frá Kaupmannahafnarháskóla árið 1998, cand.mag.-prófi í dönsku frá sama skóla árið 1987 og BA-prófi í dönsku og heimspeki frá Háskóla Íslands árið 1977.
Rannsóknasvið Auðar er danskt mál, einkum danska sem erlent mál, samanburðarmálvísindi og dönsk menning og tunga á Íslandi í sögu og samtíð.
Auður vinnur að bók um dönskukunnáttu Íslendinga og háskólanám Íslendinga í Danmörku, sem byggist á rannsókn hennar um þetta efni. Hún hefur, ásamt Guðmundi Jónssyni prófessor í sagnfræði, farið fyrir teymi íslenskra og danskra fræðimanna sem hafa unnið að rannsókninni Á mótum danskrar og íslenskrar menningar. Danir á Íslandi 1900-1970, sem hlaut m.a. styrki frá Rannsóknamiðstöð Íslands, Rannsóknasjóði Háskóla Íslands og danska vísindaráðuneytinu. Greinasafn um niðurstöður rannsóknarinnar kemur út í Danmörku á næstunni.
Þá hefur Auður unnið að samanburði á föstum orðatiltækjum í dönsku og íslensku, og þróað máltækið www.frasar.net í samvinnu við Guðrúnu Haraldsdóttur og sænska og danska fræðimenn. Hún leiðir nú norrænt rannsóknar- og þróunarverkefni, sem beinist að tileinkun Færeyinga, Grænlendinga og Íslendinga á dönsku talmáli og þróun hjálpartækis til að þjálfa danskan framburð. Veglegir styrkir hafa fengist til verkefnanna www.frasar.net og Talehjælp i dansk, þeir stærstu frá Nordplus Sprog og Kultur, Norræna menningarsjóðnum og Augustinus Fonden.