Vigdísarstofnun, STÍL – Samtök tungumálakennara á Íslandi og Tungumálamiðstöð Háskóla Íslands hafa á síðustu misserum staðið fyrir vinnustofum kennara sem fengið hafa afar góðar mótttökur.
Vinnustofurnar eru tileinkaðar tungumálakennurum, en öllum opnar til þátttöku. Boðið er upp á vinnustofurnar þátttakendum að kostnaðarlausu og engrar skráningar er krafist.
Fyrsta vinnustofa kennara á vormisseri 2020 verður haldin laugardaginn 22. febrúar kl. 10:00-12:00, en þá fjallar Skúlína Hlíf Kjartansdóttir um Tækni í tungumálanámi.
Nánar um vinnustofur kennara:
22. febrúar – Skúlína Hlíf Kjartansdóttir
21. mars – Hulda Karen Daníelsdóttir
18. apríl – Brynhildur Anna Ragnarsdóttir og Þórhildur Oddsdóttir
Aðrar fréttir