Um Vigdísarstofnun

Image
""

Um Vigdísarstofnun

Vigdísarstofnun – alþjóðleg miðstöð tungumála og menningar hefur aðsetur í Veröld – húsi Vigdísar. Miðstöðin er starfrækt undir merkjum UNESCO, Menningarmálastofnunar Sameinuðu þjóðanna og er undirstofnun Stofnunar Vigdísar Finnbogadóttur í erlendum tungumálum við Háskóla Íslands.

Alþjóðleg miðstöð tungumála og menningar hóf störf sumardaginn fyrsta 2017 þegar Veröld – hús Vigdísar var formlega tekin í notkun. Innan miðstöðvarinnar er staðið fyrir ráðstefnum, málþingum, fyrirlestrum, rannsóknum, kvikmyndasýningum, námskeiðum, fundum, sýningum og fræðslu um tungumál í víðu samhengi, sem þjóna þeim markmiðum sem koma fram í samstarfssamningi Ríkisstjórnar Íslands og UNESCO frá 2013: 

Helstu markmiðin eru að:

  • stuðla að fjöltyngi til að auka skilning, samskipti og virðingu milli menningarheima og þjóða;
  • auka vitund um mikilvægi tungumála sem grunnþáttar í menningararfleifð mannkyns;
  • stuðla að þýðingum og þýðingarannsóknum og athugunum og greiningu á þýðingaflæði;
  • vinna að varðveislu tungumála og vöktun á málstefnu og málstýringu á sviði tungumála með fjöltyngi að leiðarljósi;
  • stuðla að rannsóknum og menntun í erlendum tungumálum og menningu;
  • styðja við og stuðla að rannsóknum á móðurmálum sem hluta af almennum mannréttindum.

Helstu áherslur í starfi Vigdísarstofnunar fyrsta áratug starfseminnar eru eftirfarandi: