Alþjóðleg menningarverðlaun Vigdísar og afmælishátíð

Vigdís Finnbogadóttir, fyrrverandi forseti Íslands, verður 90 ára þann 15. apríl 2020. Þann 29. júní sama ár verða liðin 40 ár frá sögulegu forsetakjöri hennar. Munu ríkisstjórn Íslands, Háskóli Íslands og Stofnun Vigdísar Finnbogadóttur í erlendum tungumálum halda upp á þessi tímamót.

Ríkisstjórn Íslands samþykkti á fundi sínum síðastliðinn föstudag að veita alls tíu milljónir króna af sameiginlegu ráðstöfunarfé sínu í verkefnið. Annars vegar eru fimm milljónir króna til afmælishátíðar, og hins vegar fimm milljónir króna til alþjóðlegra menningarverðlauna Vigdísar, sem komið verður á fót Vigdísi til heiðurs. Verðlaunin verða veitt einstaklingum sem hafa skarað fram úr með störfum sínum í þágu menningar og þá einkum tungumála. Verðlaunin verða kennd við Vigdísi og verða veitt í fyrsta sinn á afmælishátíðinni 15. apríl næstkomandi.

Ríkisstjórnin samþykkti einnig að hin alþjóðlegu menningarverðlaun verði til framtíðar hýst í mennta- og menningarmálaráðuneytinu og að tryggð verði fjárframlög á fjárlögum til Stofnunar Vigdísar Finnbogadóttur á hlut stjórnvalda í verðlaununum.

Stofnun Vigdísar Finnbogadóttir þakkar ríkisstjórninni fyrir sitt framlag við að gera afmælishátíðina og alþjóðlegu verðlaunin að veruleika.