Heimsins jól – fjöltyngt jóladagatal

Heimsins jól – fjöltyngt jóladagatal

Heimsins jól – fjöltyngt jóladagatal er skemmtilegt verkefni á vegum Samtakanna Móðurmáls sem birtist í samstarfi við íslensku UNESCO nefndina, Vigdísarstofnun, Reykjavíkurborg, Miðju máls og læsis, Hólabrekkuskóla og Fellaskóla. Á hverjum degi í desember verður hægt að opna fyrir jólakveðju á einu af þeim 7000 tungumálum sem töluð eru í heiminum. 

Í skólastarfi verður hægt að nota jóladagatalið sem hluta af vitundarvakningu um tungumál og þá auðlind sem felst í því að geta talað fleiri en eitt eða tvö tungumál. Jóladagatalið verður að finna á vef og samfélagsmiðlum undir “Móðurmál – samtök um tvítyngi”.

Dagatalið er öllum opið og frjálst að dreifa því og nota í því samhengi sem gæti átt við. Kennarar eru hvattir til að hefja alla skóladaga í desember með því að opna “glugga” að heiminum, bera saman tungumálin, skoða hvar þau eru töluð o.s.frv. Hægt verður að láta börn og ungmenni skreyta veggi skólans með jólakveðjum á mismunandi móðurmálum.

Jóladagatalinu fylgja leiðbeiningar og hugmyndir um notkun þess í kennslustofunni. Tilgangurinn er m.a að vekja athygli á því að fjölbreytni og fjöltyngi eru mikið ríkidæmi en sú áhersla tengist bæði Heimsmarkmiðum Sameinuðu þjóðanna og Barnasáttmálanum. 

Heimsins jól – fjöltyngt jóladagatal má finna hér