Hindí kennt í fyrsta skipti við Háskóla Íslands
Tímamót verða í tungumálakennslu við Háskóla Íslands þegar kennsla í hindí hefst í fyrsta skipti í október 2019. Það er í gegnum samstarf Tungumálamiðstöðvar Háskóla Íslands, Indverska sendiráðsins á Íslandi og Endurmenntunar HÍ sem boðið verður upp á þrjú byrjendanámskeið í hindí auk námskeiðsins Indversk menning og samfélag.
Námskeiðin eru kennd á ensku og öllum opin; nemendur Háskóla Íslands geta skráð sig á Uglu sér að kostnaðarlausu en öðrum áhugasömum er bent á Endurmenntun HÍ. Um er að ræða 5 eininga (ECTS) námskeið sem kennd eru í sex vikna lotum eins og hér segir:
Haustönn 2019:HIN101G Hindí fyrir byrjendur I (22. okt. – 28. nóv. á þriðjud. og fimmtud. kl. 16:40 – 18:10)HIN201G Indversk menning og samfélag (21. okt. – 27. nóv. á mán. og miðvikud. kl. 16:40 – 18:10)
Vorönn 2020:HIN102G Hindí fyrir byrjendur II (14. jan. – 20. feb. á þriðjud. og fimmmtud. kl. 16:40 – 18:10)HIN103G Hindí fyrir byrjendur III (3. mars – 16. apríl á þriðjud. og fimmtud. kl. 16:40 – 18:10)
Pranay Krishna Srivastava, prófessor við Háskólann í Allahabad kennir öll námskeiðin.
Nánari upplýsingar veitir Eyjólfur Már Sigurðsson, forstöðumaður Tungumálamiðstöðvar HÍ: ems@hi.is