Hraðnámskeið í slóvakísku

Þriggja daga hraðnámskeið í slóvakísku verður haldið dagana 23.-25. október kl. 13:20-14:50 í Veröld - húsi Vigdísar.
Á námskeiðinu verða kennd grunnvallaratriði í slóvakísku máli og menningu með áherslu á fyrstu kynni og grunnorðaforða í samskiptum. Kennari er Dr. Lenka Štvrtecká frá Konstantínháskóka í Nitra í Slóvakíu.
Námskeiðið er opið öllum án endurgjalds.
- - -
Boðið er upp á námskeiðið sem hluta af samstarfsferkefni sérfræðinga og kennara úr Konstatnínháskóla í Nitra í Slóvakíu, Árnastofnun, námsleið í hagnýtri íslensku við Háskóla Íslands og Vigdísarstofnun, sem stendur yfir veturinn 2023-24. Aðaláhersla verkefnisins er á miðlun þekkingar og reynslu í kennslu þjóðarmála til erlendra námsmanna t.d. skiptinema og innflytjenda, bæði í staðkennslu og fjarnámi auk þess sem fjallað verður um nýjustu tækni og aðferðir í annarsmálskennslu. Verkefnið er stutt af Uppbyggingarsjóði EES frá Íslandi, Liechtenstein og Noregi.