Ársfundur Stofnunar Vigdísar Finnbogadóttur

Ársfundur Stofnunar Vigdísar Finnbogadóttur í erlendum tungumálum fyrir árið 2018 var haldinn í Veröld – húsi Vigdísar föstudaginn 31. maí 2019 og stýrði Birna Arnbjörnsdóttir, stjórnarformaður stofnunarinnar fundinum.

Á fundinum var farið yfir helstu verkefni ársins 2018 og þær skipulagsbreytingar sem áttu sér stað á árinu. Ársskýrsla var kynnt og ný vefsíða sem opnaði í lok árs 2018, ársreikningar voru lagðir fram, farið var yfir samstarf stofnunarinnar við Alþjóðlega miðstöð tungumála og menningar og að lokum var rætt um þá fjölmörgu viðburði og samstarf sem framundan eru.