Evrópska tungumáladeginum fagnað í Veröld
Vigdísarstofnun, STÍL – Samtök tungumálakennara á Íslandi og Tungumálamiðstöð Háskóla Íslands taka árlega höndum saman og halda upp á Evrópska tungumáladaginn, með stuðningi Mennta- og barnamálaráðuneytisins.
Í ár hófst dagskráin með stuttu ávarpi Þórhalls Eyþórssonar, stjórnarmanns í Vigdísarstofnun – alþjóðlegri miðstöð tungumála og menningar, sem bauð gesti velkomna fyrir hönd stofnunarinnar. Kennslufræðingurinn Birgit Henriksen, prófessor emirita frá Kaupmannahafnarháskóla, hélt því næst erindi á ensku um efni bókarinnar Hvorfor gor jeg det, jeg gor? (2020). Í erindi sínu fjallaði hún um hvernig eigin hugmyndir kennara, þekking þeirra og reynsla í tungumálanámi og -kennslu mótar gjarnan kennsluhætti þeirra. Telur Birgit að ígrundun eigin starfshátta liggi til grundvallar því að vinnulag kennara kallist á við samtímann og að framþróun verði í kennslu.
Að lokum deildi Ragnheiður Kristinsdóttir, kennari í Verzlunarskólanum og stundakennari við Háskóla Íslands, reynslu sinni af spænskukennslu. Fjallaði hún um fjölbreyttar kennslu- og námsaðferðir þar sem ýmsum aðferðum er beitt til að stuðla að gleði kennara og nemenda í kennslustofunni og jákvæðu viðhorfi nemendanna til námsins.
Fundarstjórn var í höndum Eyjólfs Más Sigurðssonar, forstöðumanns Tungumálamiðstöðvar Háskóla Íslands og að lokinni formlegri dagskrá gafst gestum tækifæri til spjalls og ráðagerða yfir léttum veitingum.