Icelandic Online fyrir börn styrkt af Mennta- og menningarmálaráðuneytinu

Verkefnið Icelandic Online fyrir börn sem þróað er hjá Stofnun Vigdísar Finnbogadóttur í erlendum tungumálum fékk nýlega veglegan styrk frá Mennta- og menningarmálaráðuneytinu. 

Icelandic Online fyrir börn er gagnvirkt 60 klst námsefni með leikjaívafi í íslensku sem öðru máli fyrir börn á leikskólaaldri og í fyrstu bekkjum grunnskóla. Markhópurinn eru 5-7 ára börn sem eiga erlent mál að móðurmáli og íslensk börn sem alist hafa upp í öðru málumhverfi og eru að byrja að lesa. Sérstök áhersla verður því á skólamál og mál námsbóka sem helsti þröskuldur tvítyngdra barna í námi. Efnið mun einnig nýtast sem ítarefni við móðurmálsnám. Námskeiðið tekur mið af Aðalnámskrá leikskóla og grunnskóla, og nýtir sér vefnámskeiðaumhverfi Icelandic Online, sem hentar bæði tölvum og snjalltækjum.

Með styrknum frá Mennta- og menningarmálaráðuneytinu telst verkefnið fullfjármagnað, en unnið hefur verið að þróun verkefnisins frá 2018 í samvinnu við Stofnun Árna Magnússonar í íslenskum fræðum með mikilvægum stuðningi Barnavinarfélagsins Sumargjafar, Styrktarsjóðs Áslaugar Hafliðadóttur, Þróunarsjóðs innflytjendamála og Þróunarsjóðs námsgagna.

Áætlað er að námskeiðið Icelandic Online fyrir börn komi út í byrjun desember á þessu ári, en það verður gjaldfrjálst og öllum opið.