Vinnustofur kennara á haustmisseri 2021

Vigdísarstofnun og STÍL – Samtök tungumálakennara á Íslandi hafa á síðustu misserum staðið fyrir vinnustofum kennara sem fengið hafa afar góðar mótttökur.

Vinnustofurnar eru tileinkaðar tungumálakennurum, en öllum opnar til þátttöku. Boðið er upp á vinnustofurnar þátttakendum að kostnaðarlausu og engrar skráningar er krafist. 

Fyrsta vinnustofa kennara á haustsseri 2021 verður haldin laugardaginn 18. september kl. 10:00-11:30, en þá fjalla Þórhildur Oddsdóttir og Brynhildur Anna Ragnarsdóttir um starfendarannsóknir í tungumálakennslu og kynna verkefnið Action research communities for language teachers.

Aðrar vinnustofur kennara haustið 2021 verða: 

23. október – Charlotte E. Wolff & Lara Wilhelmine Hoffmann: Language as a tool of transition

20. nóvember – Branislav Bédi: LARA - learning and reading assistant