Íslensk stjórnvöld, Háskóli Íslands og Vigdísarstofnun – alþjóðleg miðstöð tungumála og menningar ákváðu að efna til Vigdísarverðlaunanna í tilefni af stórafmæli Vigdísar vorið 2020 og þess að þá voru liðin 40 ár frá sögulegu forsetakjöri hennar. Verðlaunin eru veitt árlega einstaklingi sem brotið hefur blað með störfum sínum í þágu menningar og þá einkum tungumála. Verðlaunafé er 6 milljónir íslenskra króna og tilgangurinn með verðlaununum er að heiðra og vekja athygli á lofsverðu framlagi Vigdísar til tungumála og menningar, en eins og alþjóð veit hafa þessi málefni ætíð verið henni afar hugleikin. Sem velgjörðarsendiherra tungumála hjá UNESCO, Mennta-, menningar- og vísindastofnun Sameinuðu þjóðanna, hefur Vigdís lagt ríka áherslu á að efla tungumál fámennra málsamfélaga og standa þannig vörð um þann menningararf alls mannkyns sem felst í fjölbreytni tungumála.
Í stjórn Vigdísarverðlaunanna frá 2026 sitja Birna Bjarnadóttir, rannsóknalektor í bókmenntum (formaður stjórnar), tilnefnd af rektor Háskóla Íslands, Sofiya Zahova, framkvæmdastjóri Vigdísarstofnunar, tilnefnd af Vigdísarstofnun, og Páll Valsson, rithöfundur og útgáfustjóri, tilnefndur af menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðherra. Magnús Diðrik Baldursson skrifstofustjóri rektorsskrifstofu Háskóla Íslands starfar með stjórninni.
Upplýsingar um verðlaunin veitir Birna Bjarnadóttir: birna@hi.is
Handhafar Vigdísarverðlaunanna